Hvað eru Vinjettur

Franska orðið "vignette" er dregið af orðinu "vigne" og var upphaflega notað um blöð og vafninga vínviðarins. Síðar breyttist merking orðsins og var farið að nota það um nákvæmar myndir, en fékk að síðustu almennari merkingu, þ.e. persónulýsing eða lifandi og litrík lýsing.

Oft draga sem fæst orð upp skýrustu myndina. Örstutt frásögn getur meitlað höfuðatriðið.

Í bókinni Vinjettur eru stuttar, hnitmiðaðar sögur þar sem skiptast á örskotsstund aðstæður í lífi manna, afhjúpaður er tilgangur, tilfinningar endurgoldnar og þeir rata veginn heim á ný sem hlaupist hafa á brott. Listræn vinnubrögð, ráðabrugg stjórnmálamanna, ástir, náttúrulýsingar, grimmd mannanna og göfuglyndi hvers í annars garð; allir þessir þættir eru í kastljósinu.

Sögurnar eru bæði á íslensku og í enskri þýðingu Dr. Martins Regal, dósents við Háskóla Íslands. Í Vinjettunum endurspeglast hvort tveggja í senn íslensk þjóðsagnahefð, óháð stað og tíma, og áhugi og þekking nútíma heimsborgarans á umheiminum. Og þar sem sögurnar beinast að svipstundum hins sanna lífs ná þær að fanga þræðina í uppstöðu lífsvefnaðarins sem bindur mannfólkið saman.

Vinjettur IXVinjettur IX

Í Vinjettun IX eru 43 sögur vítt og breitt frá Indlandi. Ármann Reynisson opnar lesandanum sýn inn í framandi og litríkan heim með næmni sinni og víkkar þannig til muna sjóndeildarhringinn í vinjettu ritsafni sínu. Indlands vinjetturnar eru lifandi lýsingar um lífið og tilveruna og höfundur kafar að rótum móðurhjarta landsins. Frásagnirnar eru tilvaldar til íhugunar og myndrænn textinn hentar vel til upplesturs við margvísleg rækifæri.

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

 

Vinjettur VIIVinjettur VIII

Þorvar

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

 

Vinjettur VIIVinjettur VII

Í Vinjettum VII er víða komið við sögu. Ferð Ármanns til Grænlands í fyrrasumar gat af sér nokkrar stemningarsögur, auk þess sem hann svokallaðar portretsögur um Baróninn á Hvítárvöllum, Báru bleiku Sigurjónsdóttur og Jón Magnússon útgerðamann í Odda á Patreksfirði. Ármann hefur janframt skrifað nokkrar sögur um Pourquoi pas? sjóslysið mikla við Mýrar í Borgarfirði árið 1936. Hann skyggnist handan raunveruleikans í sögum um drauma, hugskeyti og tvífara, og skrifar þrjár sögur af kynferðislegri misnotkun og afleiðingar hennar. Í bókinni er þó einnig að finna sögur af léttara taginu, eins og vinjettuna Ljósastaura.

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

 

Vinjettur VIVinjettur VI

Í Vinjettum VI er kastljósinu beint að innviðum réttarfars og dægurmálum samtímans. Auk þess er þar að finna fjölbreytt efni úr daglega lífinu, náttúrunni og sögur frá nokkrum erlendum borgum.
Ármann Reynisson kemur fólki ennþá á óvart og myndrænn textinn er orðinn vinsælt lesefni í hraða nútímans innanlands sem utan og til upplesturs við ýmis tækifæri. Vinjetturnar hafa nú þegar haslað sér völl á Íslandi.

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

 

Vinjettur VVinjetturV

Áfram heldur Ármann Reynisson að kynna lífið eins og það kemur fyrir sjónir dagsdaglega í víðasta skilningi. Nú sem áður er fjölbreytnin í fyrirrúmi og áhersla lögð á nútíma dæmisögur í anda biblíunnar auk óvæntra atburða sem gerast í kirkjum landsins. Vinjettur V er litrík bók, myndrænn textinn kemur fólki jafnt á óvart og í fyrri bókum höfundar.

Vinjetturnar hafa náð fótfestu á Íslandi sem tilvaldar frásagnir til íhugunar og upplesturs við flest tækifæri. Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

Vinjettur IVVinjettur IV

er fjölbreytt að efni eins og fyrri bækur Ármanns Reynissonar. Höfundurinn leiðir lesandann um heima ásta og blekkinga jafnt sem fegurðar íslenskrar náttúru og undur veraldar. Hann opnar augun fyrir nýjum sjónarhornum í lífinu þar sem velvild og illska takast stöðugt á. Velt er upp spurningunni hvaðan mannfólkið kemur og hvert það fer. Vinjetturnar eru á köflum ástríðufullar og jafnan gæddar lifandi myndum. Frásagnirnar eru tilvaldar til íhugunar og þær njóta sín vel í upplestri.

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

Vinjettur IIIVinjettur III komin út

Í bókinni Vinjettur III ferðast höfundur með lesendur sína á nýjar slóðir, bæði innanlands og utan. Neistar í frásögn verða m.a. samtímaatburðir, hamfarir ýmiskonar og breytingar á íslensku þjóðfélagi síðastliðna öld. Ármann Reynisson kemur á óvart eins og í fyrri bókum sínum, opnar sýn inn í dulda heima, með innsæi í mannlegt eðli og á tíðum djarfleik. Það er eins og stuttmynd líði hjá í myndrænum textanum sem hentar vel til upplestrar. Frásagnirnar eru tilvaldar til hvíldar og umhugsunar frá annríki dagsins.

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

Vinjettur IIVinjettur II

Bókin Vinjettur II hrífur lesendur sína með í ævintýranlegt ferðalag, hún er bæði næm og með viðkvæmni, fallegum augnablikum, innsæi í mannlegt eðli og á tíðum opinská og djörf. Ármann Reynisson fer á kostum, kemur víða við innanlands og utan og opnar sýn inn í heima sem fáir þekkja. Sögurnar leiða lesandann áfram hver af annari, þær hljóma saman og enduróma í reynsluheimi hans. Oft draga sem fæst orð upp skýrustu myndina. Örstutt frásögn getur meitlað höfuðatriðið. Vinjetturnar eru sem stutt leikrit - myndrænn textinn hentar vel til upplestrar.

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

Vinjettur IVinjettusafn I

fékk frábærar viðtökur lesenda og upplagið er uppselt. Viðbrögð við bókinni hafa komið bæði innanlands sem utan.

Í bókinni eru stuttar, hnitmiðaðar sögur þar sem skiptast á örskotsstund aðstæður í lífi manna, afhjúpaður er tilgangur, tilfinningar endurgoldnar og þeir rata veginn heim á ný sem hlaupist hafa á brott. Listræn vinnubrögð, ráðabrugg stjórnmálamanna, ástir, náttúrulýsingar, grimmd mannanna og göfuglyndi hvers í annars garð; allir þessir þættir eru í kastljósinu.

Verð kr. 4.900,- (sendingarkostnaður innanlands innifalinn).

Sendu póst á armann(hjá)centrum.is vegna spurninga eða ábendinga varðandi þessa síðu.
Höfundarréttur © 2001 Ármann Reynisson